COTTON MERINO
COTTON MERINO
Couldn't load pickup availability
Cotton Merino er mjúkt og notalegt blöndugarn úr 47% bómull og 53% merínóull. Garnið er kláðalaust og einstaklega mjúkt, sem gerir það að frábæru heilsársgarni fyrir bæði börn og fullorðna.
Cotton Merino hentar sérstaklega vel þeim sem finna fyrir kláða af ull eða eru með viðkvæma húð. Þar sem garnið inniheldur bæði ull og bómull er það teygjanlegra og með meiri fyllingu en hreint bómullargarn, án þess þó að verða of heitt.
Garnupplýsingar
- Efni: 47% bómull, 53% merínóull
- Lengd: 125 m / 50 g
- 3,5 mm prjónar: 22 lykkjur á 10 cm
- 4 mm prjónar: 21 lykkja á 10 cm
- 4,5 mm prjónar: 20 lykkjur á 10 cm
- Handþvottur við 30°C
- Leggið flíkina flata til þerris
Merínóullin er 100% hrein, ómeðhöndluð og mulesing-frí, og velferð dýranna er höfð að leiðarljósi við framleiðsluna.
Garnið hefur ekki farið í superwash-meðhöndlun og inniheldur því ekkert plast. Það er framleitt á siðferðilegan og umhverfisvænan hátt á Ítalíu.




