DROPS AIR - FORSALA
DROPS AIR - FORSALA
Couldn't load pickup availability
✨ FORSALA Á DROPS AIR ER HAFIN! ✨
Nú getur þú tryggt þér uppáhalds litina af Drops Air í forsölu á prjónabær.is 🧶💕
📦 Afhending verður seinna í júní. Þú færð tölvupóst þegar pöntunin þín er tilbúin.
❤️ Það sem gerir þessa forsölu enn sérstakari er að 10% af hverri seldri dokku rennur til Kvennaathvarfsins og styðja þannig mikilvægt starf þeirra.
Mig langar einnig að benda á Skjól-uppskriftina sem er til sölu á heimasíðu Kvennaathvarfsins. Með því að kaupa bæði uppskriftina og garnið ertu ekki aðeins að undirbúa fallegt prjónaverkefni heldur einnig að styðja við mikilvægt málefni. 💜
Miðlungs þykkt blásið garn úr baby alpaca og merino ull
Innihald: 65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
Garnflokkur: C (16 - 19 lykkjur) / 10 ply / aran / worsted
Þyngd/lengd: 50 g = ca. 150 metrar
Mælt með prjónastærð: 5 mm
Prjónfesta: 10 x 10 cm = 17 l x 22 umf
Meðhöndlun: Þvoið í höndunum, hámark 30°C / Leggið flíkina flata til þerris / Hentugt til þæfingar
Superwash: nei
Made in: Peru/EU
Uppruni hráefnis: Alpakka og ull frá Suður Ameríku, polyamide frá Þýskalandi




